Ekki sama hver stjórnar íslandi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, var í viðtali við Ingva Hrafn Jónsson á ÍNN, í gær. Þetta var langt viðtal og var hvorki betra né verra en búast mátti við.

Eitt af því sem forsætisráðherrann fyrrverandi sagði hljóta flestir, ef ekki allir, að vera sammála um. Hann sagði að það væri ekki sama hverjir stjórna á Íslandi. Það er einmitt þess vegna sem fólk krafðist kosninga og forysta stjórnarflokkanna féllst á þá kröfu.

Það er ákveðinn léttir að heyra Sigmund Davíð segja þetta. Reyndar metur hann þetta á annan veg en flestir aðrir Íslendingar. Hann metur stöðuna þannig, þegar hann segir ekki sama hverjir stjórna, að það verði að vera hann. Hann sagði okkur, sem þjóð búa við einstakt tækifæri til að búa vel að öllum Íslendingum, en að sama skapi væru auðvelt að klúðra þessu dauðafæri. „Það er ekki sama hver stjórnar,“ sagði formaður Framsóknarflokksins.

Hann fullyrti einnig að alþjóða fjármálaheimurinn hati Ísland eftir fullnaðarsigur Íslands við uppgjör við hrægammana, hann sagði reyndar ekki hrægammar, man bara ekki hvað orð hann notaði í stað þess, og að þeir menn sem starfa á hinum alþjóðlega fjármálamarkaði kunni ekki að tapa. Þeir hata sigurvegarann.

Ólafur Ragnar Grímsson sagði og Davíð Oddsson sagði ekki sama hver sæti Bessastaði. Vá væri fyrir dyrum og að þar yrði að sitja staðfesta og reynsla. Sú baráttuaðferð beið afhroð síðast þegar þjóðin gekk að kjörborðinu. Sigmundur Davíð ætlar að reyna þessa aðferð nú, og segir; það er ekki sama hver stjórnar. Verði stjórnin ekki rétt er hætta á að tækifærin klúðrist.

Gott og vel, það er ekki sama hver stjórnar, auðvitað er það rétt. Fólk veit þetta. Það má lesa úr niðurstöðum allra skoðanakannanna. Fáir stjórnmálamenn samtímans njóta minna trausts en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.