Ég og donald trump

Ég gafst upp. Nennti ekki að horfa eða hlusta til enda þegar Donald Trump var í viðtali í 60 mínútum. Hann er óþolandi leiðinlegur maður. Maður sem er kominn langtum lengra en hann hefur nokkra burði til.

Fyrir hartnær tuttugu árum sat ég stundum á börum borgarinnar. Það versta sem henti mig á kráarröltinu var að lenda í, já lenda í, þessum týpum. Gorturum andskotans. Uppfullir af eigin ágæti, oftast gjörsamlega innistæðulausu. Þegar þannig menn yfirtóku barina var ein leið greið, standa upp, fara eitthvað annað.

Eftir að hafa reynt að hlusta á næsta forseta Bandaríkjanna, gafst ég upp. Stóð upp og fór að gera annað. Í nærri tuttugu ár hef ég ekki komist nær því að vakna timbraður, eða Trumpaður.

Hvernig endar valdaferill þessa ómerka manns?