Dularfullur maður bjargaði lífi Hrannar: „Hann var mjög erfiður og svolítið skuggalegur“

Miðillinn Hrönn Friðriksdóttir var gestur í hlaðvarpinu Með Vitjanir á heilanum á dögunum, en þar ræddi hún um miðilsgáfuna og drauga. Ein af mörgum fróðlegum frásögnum Hrannar varðar dularfullan mann sem bjargaði lífi hennar.

„Ég giftist ung og flutti norður í land, útí sveit. Þar var í fyrsta skipti sem ég gerði svona samkomulag við mann að handan. Það var maður sem byggði þetta hús sem var í því. Hann var mjög erfiður og svolítið skuggalegur, verð ég að segja,“ segir Hrönn, en bætir við „Við komumst að samkomulagi að ég myndi láta hann í friði, ef hann myndi reyna að láta mig í friði,“

„Ég veit samt líka að hann bjargaði mínu lífi. Ég var einu sinni að koma heim í brjáluðu veðri,“ segir Hrönn, en þannig hefst frásögn hennar af lífsbjörginni. Hún segist hafa verið á leiðinni heim úr Yoga-tíma, sem hún segir að hafi verið eina heilsuræktin sem var í boði í nágreninu. „Ég kem semsagt seint heim að kvöldi og það er brjáluð hríð. Það sést ekki út úr augunum.“

Hrönn segist hafa fest bílinn sinn í brekkunni upp að húsinu sínu sem var í um það bil þrjúhundruð metra fjarlægð frá því.

„Ég endaði á að þurfa bara að skríða langleiðina heim. Það var ekkert hægt að standa uppi. Þetta var svo rosalegt veður,“ segir hún og bætir við „Mér fannst þá alveg eins og hann hefði tekið í hendina á mér, eða öxlina. Og þá fór ég bara beint upp í vindinn og kom akkúrat að hurðinni að kjallaranum,“

Daginn eftir segist Hrönn hafa fengið sjokk og hugsað með sér „Ég hefði getað orðið úti,“ Hún segist hafa velt fyrir sér hver hefði bjargað sér, og telur þennan dularfulla og skugglega mann líklegastann.