Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, greindi frá því hvað það var sem fékk hana til að snúa aftur til Íslands í útvarpsþættinum Sunnudagsögur.
Í viðtalinu sagði hún frá dvöl sinni í Osló. Þar stundaði hún nám í heimspeki og alþjóðafræði. Hún segist hafa verið mjög sátt þar.
En árið 2016 varð réttlætiskenndin of sterk. Hún byrjaði að skrifa greinar í íslenska fjölmiðla, og var gáttuð á íslensku samfélagi, en umrætt ár láku hin svokölluðu Panamaskjöl. Það var einmitt það sem fékk hana til að snúa aftur.
„Í Noregi er rosalega mikil lýðræðisást og áhersla á gagnsæi. Það er eitthvað sem er fólki í blóð borið og eitthvað sem ég fór að tileinka mér,“ segir Dóra sem fannst þetta gagnsæisleysi ekki til staðar á Íslandi. „Mér sveið þetta, það setti réttlætiskenndina á flug og kveikti undir henni.“
Hún segir þessa ákvörðun þó ekki hafa verið auðvelda. „Ég átti líf, sambýlismann og hafði verið með honum í sex ár, var búin að byggja upp yndislega tilveru. Svo komu Panamaskjölin og það var ákveðið að boða til nýrra kosninga. Ég var búin að fylgjast með Pírötunum og hafði verið hluti af flokknum en ekki mikið að skipta mér af.“
Dóra pakkaði í tösku og ætlaði bara að hjálpa við kosningabaráttuna en örlögin sáu til þess að hún varð lengur. „Ég sagði skilið við sambýlismanninn og kærasta til margra ára og þetta gamla líf sem hafði verið minn heimur í sjö ár, mikil þroskaár þar sem ég fór frá því að vera barn eða ungmenni í fullorðna manneskju.“
Spurð frekar út í þessa ákvörðun segir hún: „Þó það hafi verið erfitt og sárt að mörgu leyti. Þetta var erfiður prósess og það tók langan tíma að komast í gegnum kerfið en það var rétt fyrir mig því það sýndi sig að ég hafði tækifæri til að láta gott af mér leiða. Þetta var rétt ákvörðun,“