Davíð opnar sig um sambandið við Katrínu: „Það var allt önn­ur mann­eskja“

Deilur sóknarprestsins Davíðs Þórs Jónssonar við stjórnvöld, og þá sérstaklega Vinstri græn og Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hafa vakið athygli síðustu daga. Davíð er ekki sáttur með að brottvísun flóttafólks til Grikklandi, og sagði sérstakan stað í helvíti fyrir „fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur,“

Málið hefur undið upp á sig síðustu daga, sérstaklega vegna þess að Katrín Jakobsdóttir og Davíð Þór voru einu sinni par, og það í heil sjö ár.

Sjá einnig: Davíð Þór og Katrín Jakobs ástfangin á forsíðu Séð og Heyrt

Mbl.is spurði Davíð Þór út í hvort samband þeirra hefði eitthvað haft með ummæli hans og gera. Hann svaraði að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra væri hreinlega allt önnur Katrín Jakobsdóttir en sú sem hann hafi verið í sambandi með. Hún hefði hreinlega breyst svo mikið.

„Vit­ur maður mælti forðum. Það eru skipt­ar skoðanir um ná­kvæm­lega hver það var en hann sagði stór­ar sál­ir tala um hug­mynd­ir, miðlungs sál­ir tala um at­b­urði, smá sál­ir tala um per­són­ur.

Umræðan ætti að snú­ast um það hvernig við sem sam­fé­lag kom­um fram við okk­ar minnstu bræður og syst­ur. Ef að ein­hverj­um finnst að sú umræða eigi að snú­ast um það hvernig til­finn­inga­lífi mínu var háttað fyr­ir 20 árum…jah þá vit­um við hversu stór sál­in í því fólki er,“

„Þar fyr­ir utan þá bjó ég aldrei með for­sæt­is­ráðherra Íslands, það var allt önn­ur mann­eskja.“