D fyrir dressmann

Fjórir karlar virðast ætla að skipa fjögur efstu sætin á lista Sjálfstæðisflokksins í Kraganum í komandi kosningum. Dressmannkvartettinn er fullskipaður.

Það sem meira er að körlunum er raðað upp eftir stafrófsröð. Bjarni kemur fyrstur, svo Jón Gunnars þá Óli Björn og loks Villi Bjarna.

Fyrsta konan er í fimmta sæti. Formaðurinn hefur lýst vonbrigðum með stöðuna. Hvað ætli kjósendum komi þá til með að finnast?