Bretland hafi aldrei verið í eins miklum vanda: „Heimatilbúin krísa“

Ólafur Arnarson fjallar um brotthvarf Breta úr Evrópusambandinu í pistli sem birtist á Hringbraut í gærkvöld. Þar segir hann að Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hafi svindlað Bretum úr sambandinu með blekkingum

„Löngu er orðið ljóst að honum gekk ekkert annað til en að koma sjálfum sér til valda í landinu. Það tókst. Sigurgleðin varð hins vegar skammvinn. Rúinn trausti hrökklaðist hann frá völdum.“ segir Ólafur.

Hann segir að síðan hafi breska þjóðin þurft að líða fyrir ákvörðunina að draga Bretland úr ESB, og kallar ákvörðunina heimskulega. „Landsmenn eru í vandræðum með aðdrátt matvæla og eldsneytis og staðan á vinnumarkaði hefur versnað til mikilla muna. Gengi gjaldmiðils þeirra hefur fallið, hagvöxtur er á niðurleið og mikilvæg fyrirtæki hafa flúið úr landi og komið sér fyrir á meginlandi Evrópu.“ nefnir hann.

„Íhaldsflokkurinn fékk skammvinnan byr út á innistæðulaus loforð um gull og græna skóga utan ESB en svo sló í bakseglin. Boris Johnson komst í stól forsætisráðherra en var hent öfugum út. Farið var út með hann eins og hvert annað rusl. Margir töldu að þá væri vandinn leystur.“ segir Ólafur sem ræðir síðan nýjan leiðtoga Íhaldsflokksins, Liz Truss, sem er orðin forsætisráðherra landsins.

„Á sex vikum hefur henni tekist að klúðra öllu sem unnt er að klúðra og Boris Johnson var ekki þegar búinn að klúðra. Nú er staða hennar þannig að hún situr enn á valdastóli en er algerlega valdalaus og rúin trausti. Helsta afrek hennar er að við liggur að Bretar séu farnir að sakna trúðsins Boris Johnson.“ skrifar Ólafur.

Þá fer hann að velta því sem framundan er í Bretlandi, og bendir á að það verði að segjast ólíklegt að þeir snúi aftur í ESB, og ekki vilji Evrópa fá þá aftur.

„Bretland hefur aldrei lent í viðlíka stöðu. Heimatilbúin krísa sem byrjaði með vanhugsaðri úrsögn úr Evrópusambandinu. BREXIT er dýrasta klúður allra tíma.“ eru lokorð pistilsins.

Hægt er að lesa pistilinn hér.