Björt framtíð fann fjölina sína

Það kom að því. Björt framtíð hefur loks sérstöðu frá öðrum flokkum. Hið minnsta má lesa það í fréttum dagsins. Björt framtíð er sögð ein flokka gegn samkomulagi um smávægilegar breytingar á búvörusamningnum. Björt framtíð vill meira. Það er gott hjá Bjartri framtíð.

Björt framtíð er á móti að enn verði mjólkurklíku landsins heimilt að þurfa ekki að virða sömu leikreglur og aðrar atvinnugreinar. Björt framtíð er á móti að mjólkurklíkan geti murkað lífið úr samkeppnisfyrirtækjum. Afstaða Bjartrar framtíðar er, samkvæmt því sem Fréttablaðið, segir í þrettán liðum. Allt bundið trúnaði og því óvíst hverjir þeir eru aðrir en sá að ætlast til að mjólkurklíkan starfi eftir sömu landslögum og aðrir.

Einn hængur er á þessu, hvað varðar Bjarta framtíð og framtíð flokksins. Brynhildur Pétursdóttir er að hætta á þingi. Hún er best allra þingmanna til að gæta að stöðu neytenda.