Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, setur út á aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum í pistli á Facebook í dag. Þar vitnar hann í tilkynningu frá hjúkrunarfræðingi á bráðamóttöku sem send var til fjölmiðla í dag og fjallaði um að hættuástand ríki á bráðamóttöku Landspítalans.
Eins og fram kom á Frettabladid.is í morgun segir í tilkynningunni að ekki sé hægt að tryggja öryggi sjúklinga á bráðamóttöku Landspítalans og að líkurnar á mistökum aukist þegar starfsfólk er yfirkeyrt í vinnunni. Biðstofa bráðamóttökunnar er sífellt yfirfull og neyðast sjúklingar til að bíða í fleiri klukkutíma eftir aðstoð. Stjórnvöld þurfi að grípa til aðgerða hið snarasta og bregðast við vanda bráðamóttökunnar, líkt og segir í tilkynningunni.
„Þetta er ekkert nýtt,“ segir Björn og heldur áfram: „Það er enn sama vandamál og við höfum vitað af allt kjörtímabilið en lausn er ekki enn í augsýn. Það hefur verið rætt um vandann ítrekað í fjárlaganefnd en það hefur ekki einu sinni verið reynt að leysa þetta vandamál. Átak í uppbyggingu hjúkrunarrýma? Alltaf augljóst að það myndi ekki leysa vandann. Átak í heimahjúkrun? Aldrei sagt að það myndi duga, þeas aldrei kynnt sem lausn á þessum vanda. Heilsugæslan sem fyrsti viðkomustaður? Nei, ekki heldur lausn á fráflæðisvandanum.“
Hann segir að ríkisstjórnin hafi aldrei komið fram með neina haldbæra lausn á vandamálunum. „Svo ég segi það skýrt og greinilega, ríkisstjórnin hefur aldrei komið upp í ræðustól þingsins (né í viðtölum eða á öðrum vettvangi) og sagt "við leysum fráflæðisvandann með því að gera x, y og z!"Það hafa verið kynntar misfjármagnaðar aðgerðir sem hafa jafnvel bara verið til þess að halda í við kerfislægan vöxt - og þær trompaðar upp sem efling heilbrigðisþjónustu - en á sama tíma hefur alltaf verið augljóst að vandinn yrði áfram til staðar,“ segir Björn.
Sú ríkisstjórn sem nú sé í burðarliðnum sé ekki til þess fallin að leysa vandann. „Einhver sagði að það væri bilun að reyna það sama aftur og aftur og búast við öðrum niðurstöðum. Ég held að það eigi mjög vel við í þessu tilfelli. Lausnin er augljóslega ekki ríkisstjórn sömu flokka áfram. Þau gerðu ekkert annað en að monta sig af árangri í heilbrigðisþjónustu en staðan sýnir að árangurinn var samt enginn,“ segir Björn og heggur endahnútinn á pistilinn.