Björn Ingi vill frekar sjá Davíð Þór í pólitík en í prestsfötum

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, virtist hvetja Davíð Þór Jónsson sóknarprest til að hætta preststörfum sínum og taka frekar þátt í pólitík ætli hann sér að tala jafn frjálslega og hann hefur gert síðustu daga. Þetta sagði Björn Ingi í umræðuþættinum Sprengisandi í dag.

„Hann er sóknarprestur, og þeir mega að sjálfsögðu taka þátt í umræðu eins og allir aðrir. En hann er bara búinn að gera svolítið mikið af þessu. Það eru nokkur ár síðan hann var orðaður við forsetaframboð, þá ræddi hann mikið um þetta. Það er mánuður síðan hann var á Austurvelli að gagnrýna Vinstri græna harðlega fyrir að selja sál sína í Íslandsbankamálinu, og þá hafði hann líka stór orð.“

Líkt og áður segir velti Björn Ingi því fyrir sér hvort rödd Davíðs ætti nú frekar heima í pólitík. Þá sagði hann óviðeigandi að Davíð gæfi til kynna að íslendingar byggju í fasistaríki.

„Á einhverjum tímapunkti er ekkert óeðlilegt að maður velti fyrir sér hvort Davíð Þór ætti ekki bara að fara sjálfur að vera stjórnmálamaður, og reyna á vinsældir sínar þar og láta rödd sína heyrast. Í stað þess að gera þetta sem prestur, því það er öðruvísi þegar prestur segir að maður eigi vist í helvíti skilið og að ríkisstjórn Íslands sé fasistastjórn. Það er að mínu mati mikil vanvirðing við þá íbúa heimsins sem búa í fasistaríkjum. Það er ekkert grín og það er ekki þannig að Íslendingar búi í fasistaríki.“ sagði Björn og bætti við að í slíkum ríkjum væri gjarnan ekki mikið tjáningarfrelsi og ekki víst að Davíð Þór hefði komist upp með að tjá hug sinn.