Bjarni Benediktsson kom nokkuð á óvart þegar hann tilefndi fólk, fulltrúa af hálfu Sjálfstæðisflokksins, í samningaviðræður við Bjarta framtíð og Viðreisn, um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Ljóst er að Bjarni ætlar að hafa allt, sem gert verður þá daga sem stjórnarmyndunin mun standa, sem næst sér.
Fulltrúar Bjarna og þá um leið Sjálfstæðisflokksins eru; Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari flokksins sem er og nýkjörin á þing og um leið yngsti þingmaður flokksins, Teit Björn Einarsson, sem einnig er nýkjörinn til þingsetu og hann hefur verið annar tveggja aðstoðarmanna Bjarna, og svo Svanhildi Hólm sem hefur verið helsti aðstoðarmaður og nánasti samstarfsmaður Bjarna um árabil.
Bjarni nýtir sér ekki reynslu Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra, og ekki reynslu Guðlaugs Þórs Þórðarssonar fyrrverandi heilbrigðisráðherra og sama er að segja um nefndarformennina fyrrverandi, Jón Gunnarsson úr atvinnuveganefnd og Unni Brá Konráðsdóttur úr allsherjar- og menntamálanefnd. Haraldur Benediktsson, bóndi og fyrrverandi formaður Bændasamtakanna, fær ekki að vera með þar sem rætt verður um landbúnaðarmál, svo eitthvað sé nefnt.
Sé sumum af þeim sem hér eru nefndir ekki brugðið eru þeir blóðminni en þeir hafa sýnt á liðnum árum. Eins má spyrja hvort Bjarni sé að boða breytingar, breytingar á því fólki sem mótar stefnuna og þá um leið því fólki sem á að fylgja henni eftir.
Þá er spurt, takist Bjarna að mynda ríkisstjórn, mun hann þá sækja ráðherrana út fyrir þær raðir sem augljósastar hafa verið?