Bjarni sé hræddur við Kristrúnu: „Sloppinn úr fárviðrinu“ ef hann forðast hana

„Bjarni þorir ekki í Kristrúnu“ segir fyrrverandi ráðherrann Össur Skaprhéðinsson í færslu á Facebook-síðu sinni, en þar skoðar hann stöðu fjármálaráðherra gagnvart nýkjörnum formanni Samfylkingarinnar.

„Eina ástæðan fyrir því að tókst að koma Íslandsbankamálinu í farveg einhvers konar rannsóknar var skeleggur málflutningur Kristrúnar Frostadóttur. Það voru fyrst og fremst hnífskörp rök hennar sem hröktu Bjarna Benediktsson og ríkisstjórnina á fyrsta flóttann í málinu. Hundléleg stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd alþingis virðist ekki ná að greina aðalatriði málsins gegnum moðsuðuna sem skýrsla ríkisendurskoðunar er.“ segir Össur.

Hann segir ljóst að Bankasýslan hafi mölbrotið öll prinsip um jafnræði og gagnsæi, en þrátt fyrir það sé skýrsla Ríkisendurskoðununnar ekki góð, sem verði til þess að Bankasýslan hafi hana að háði og spotti.

„Bjarni Benediktsson, sem ber ábyrgð á málinu, veit að hann er næstum sloppinn úr fárviðrinu sem í öðrum löndum hefðu leitt til afsagnar. Það eina sem hann þarf nú að tryggja er að forðast andspæni við Kristrúnu Frostadóttur í fjölmiðlum. Hún hefur einfaldlega yfirburðatök á efnahagsmálum og Valhöll veit af nýlegri reynslu að Kristrúnu mun veitast létt verk að skræla utan af Bjarna falsrökin og blekkingarvefinn sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefndin lætur ríkisstjórnina komast upp með.“

Síðan segir Össur frá því hvernig áróðursmaskína Sjálfstæðisflokksins bregst við því:

„Dagskipan Valhallar er því sú, að forðast með öllum ráðum einvígi Bjarna og Kristrúnar um Íslandsbankamálið. Til vara er áróðursmaskína flokksins ræst til að tala Kristrúnu daglega niður í Morgunblaðinu, í pirringspistlum hugmyndafræðinga einsog Björns Bjarnasonar, Brynjars Níelssonar auk annarra smærri pótintáta á netinu. Þetta er ástæðan fyrir því að flokkurinn hafnaði því við RÚV að Bjarni myndi mæta Kristrúnu í Kastljósi. - Sjálfstæðisflokkurinn þorir ekki í rökræðu við Kristrúnu Frostadóttur um Íslandsbankamálið.“