Bjarni ben vill stöðva okur með minni kaupgetu

„Við verðum líka að gefa því gaum varðandi húsnæðismálin að húsnæðismarkaðurinn er markaður sem ræðst eins og flestir aðrir markaðir af framboði og eftirspurn. Í augnablikinu er það þannig þegar við horfum á húsnæðisverð, t.d. á höfuðborgarsvæðinu, að það eru verktakarnir, byggingaraðilarnir, sem skafa til sín verulegan hluta af endanlegu söluverði íbúðanna. Við þær aðstæður þurfum við að gæta að okkur að bæta ekki enn getu fólks til að styrkja eftirspurnarhliðina ef ekkert er gert á framboðshliðinni, vegna þess að það ratar allt beint út í verðið.“

 Ætli þetta kallist að tala lausnamiðað?

Bjarni fann þá lausn gegn okri á íbúðamarkaði að, hvað sagði hann; „...þurfum við að gæta að okkur að bæta ekki enn getu fólks.“

Er það lausnin gegn okrinu sem hann sjálfur nefndi þannig; „...það eru verktakarnir, byggingaraðilarnir, sem skafa til sín verulegan hluta af endanlegu söluverði íbúðanna.“

Er þá lausnin gegn okrinu að hefta kaupmátt almennings, einkum ungs fólks.

Sigurjón M. Egilsson.