Bjarni Benediktsson veit sem er að hann hefur lofað kosningum í haust. Hann veit líka að þjóðin man að hann sveik loforðið um þjóðaratkvæði um hvort halda ætti áfram viðræðum við Evrópusambandið eða ekki.
Bjarni er aftur byrjaður að lofa. Hann hyggst gjörbreyta hinu einstaklega óvinsæla kjararáði. Fátt hljómar betur. Nema ef vera skyldi átak í heilbrigðismálum. Kári Stefánsson hefur lamið svo á ríkisstjórninni vegna þess málaflokks að hún getur ekki annað en tekið við sér.
„Við ætlum að auka fjárframlög til heilbrigðisþjónustunnar með það að markmiði að stórbæta Landspítalann og aðrar stofnanir kerfisins og minnka greiðsluþátttöku sjúklinga þannig að það verði enginn fjárhagslegur þröskuldur sem komi í veg fyrir að fólk nýti sér þjónustuna,” segir Bjarni í samtali við Moggann.
Bjarni heldur áfram og gerir upp frammistöðu sína og flokksins í þessum mikilvæga málaflokki. „Það sem ég á m.a. við er að 20% sjúklinga treysta sér ekki til þess að leita heilbrigðisþjónustu vegna bágrar fjárhagsstöðu; við erum með langa biðlista eftir lífsnauðsynlegum aðgerðum eins og hjartaþræðingum; við erum með stefnu um að 80% kostnaðar við tannlækningar eldri borgara eigi að greiðast af ríkinu, en búum hins vegar við þann raunveruleika að sjúklingarnir sjálfir bera um 80% kostnaðarins.”
Nú sér fram á enda á starfsferli ríkisstjórnarinnar. Uppgjörið er framundan. Bjarni er fyrstur innanbúðarfólksins og sparar sig hvergi. Hann er dómharður í eigin málum og síns samstarfsfólk.
„Við höfum of mörg dæmi þess að fólk er að falla á milli skips og bryggju og því finnst mér ekki annað verjandi en að segja að þetta séu málin sem við ætlum núna að setja í forgang. Það má treysta því að við munum halda sköttum og gjöldum í lágmarki, en það er okkar forgangsmál núna, að koma samfélagsþjónustunni í betra lag.”
Bjarni er vissulega harður dómari í eigin sök. Ef rétt er, hefði ekki verið nær að gera eitthvað áður en fólk féll á milli skips og bryggju. Það er dauðans alvara. Eitt sinn féll skipsfélagi minn milli skips og bryggju. Ég var við útför hans fáum dögum síðar.