Benedikt gerir mikið úr litlu

 Viðreisn fékk 1.482 atkvæði í Norðausturkjördæmi, þar sem formaður flokksins, Benedikt Jóhannesson var í kjöri. Alls hefur kjördæmið tíu þingmenn. Benedikt er tíundi og síðasti þingmaður kjördæmisins. Þrátt fyrir að hafa innan við fimmtán hundruð atkvæði að baki sér hefur formaður Viðreisnar náð ótrúlegri stöðu í íslenskum stjórnmálum.

Benedtikt, sem rétt náði kjöri og er nýliði í stjórnmálum, virðist nú vera með prókúru tveggja flokka og ellefu þingmanna. Aðeins frændi hans, Bjarni Benediktsson, hefur stærri þingflokk en Benedikt.

Víst er að Benedikt hefur leitt sinn hóp eftir kosningar og hefur hann, ásamt meðreiðarsveini sínum, Óttarri Proppé, tekið þátt í fleiri tilraunum til stjórnarmyndunar en nokkur annarr.

Benedikt hefur tekist, nánast með undraverðum hætti, að verða áhrifamestur íslenskra stjórnmálamanna síðustu vikur, allt út á 1.482 atkvæði sem hann fékk laugardaginn 29. október.

Nú er að sjá hversu vel honum tekst að halda á þeim miklu áhrifum sem hann hefur náð.