Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, fullyrðir að Bjarni Benediktsson, frændi hans og formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi í stjórnarmyndunarviðræðunum opnað á markaðslausnir í sjávarútvegi, en síðan dregið í land.
„Það var óljóst hver stefna Sjálfstæðisflokksins var í sjávarútvegsmálum en formaður flokksins hafði opnað á markaðslausn eða markaðstengt gjald en svaraði svo ekki tillögu okkar þar að lútandi,“ segir Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, í Morgunblaðinu í dag.
Stuðningur Sjálfstæðisflokksins við sjávarútveginn, og öfugt, hefur trúlega ráðið úrslitum. Ráðið að nú stefnir Sjálfstæðisflokkurinn í einangrun.
Bjarni nýtti tímann illa, afar illa. Hann hafði umboð frá forseta í þrettán daga. Fjóra daga eða fimm nýtti hann til að ræða formlega við aðra flokka. Það er ábyrgðarhluti að sitja heima þegar blasir við hver verkefnin eru. Þau eru brýn.
Nú er Katrínar Jakobsdóttur að reyna að mynda fjölflokkastjórn. Það verður erfitt að koma að saman fimm flokka ríkisstjórn, fimm flokka stjórn með einum eða öðrum hætti. Þrír flokka eða fjórir í stjórn og einn eða tveir sem verja hana vantrausti gegn einhverju gjaldi. Þetta er flókin mynd og von Sjálfstæðisflokksins er sú að Karínu gangi illa að ná saman fjölflokka stjórn og að hún verði að endingu að bjóða Sjálfstæðisflokki til viðræðna um myndun ríkisstjórnar.
Í kosningunum kom einna skýrast fram að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks féll. Hélt ekki velli. Þess vegna er brýnt að Katrín reyni að mynda ríkisstjórn án þeirra flokka.