Bæði mogginn og fréttablaðið?

Svo virð­ist sem að heilu dag­blöðin séu gefin út bara til að klekkja á Fram­sókn­ar­flokkn­um.

Eitthvað á þessa leið mæltist formanni Framsóknarflokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, á miðstjórnarfundi flokksins.

Dagblöðin eru einungis tvö; Mogginn og Fréttablaðið. Viss er ég um að tilgangur með útgáfu beggja blaðanna er allt annar en klekkja á Framsóknarflokknum. Trúi ekki að nokkur leggi í útgáfu á dagblaði í þeim tilgangi sem formaður Framsóknarflokksins heldur fram.

Sigmundur Davíð segir dagblöðin, gefum okkur að hann eigi við meira en dagblöð; þannig að hann telji Fréttatímann og DV til dagblaða, sem þau eru ekki, þáfjölgar um tvö blöð í hópnum.

Þá eru að hans mati að minnsta kosti tvö af þessum blöðum, DV, Fréttatímanum, Mogganum og Fréttablaðinu, gefin út til að klekkja á Framsóknarflokki.

Ætli hafi verið klappað fyrir formanninum þegar hann sagði þetta?

Sigurjón M. Egilsson.