Arka yfir á skítugum skóm

Vandasamt er að leysa úr vandanum sem kominn er upp vegna raflagna að Bakka utan Húsavíkur. Reyndar er verkefnið allt hið merkasta. Tilurð þess var snúin og síðan hefur á ýmsu gengið. Þeir sem að hafa komið, margir hverjir hið minnsta, virðast knúnir áfram af frekju, heimtufrekju.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur ógilt ákvörðun Skútustaðahrepps, frá því í apríl í vor, um samþykki framkvæmdaleyfis handa Landsneti hf. fyrir Kröflulínu 4. Fjöregg, félag um náttúruvernd og heilbrigt umhverfi í Mývatnssveit, og Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands, sem kærðu málið til úrskurðarnefndarinnar.

Eðlilega er til fólk sem er afar ósátt með stöðuna. Framkvæmdir gengu með ágætum og allt virtist ætla að ganga eftir. Þá kom babb í bátinn.

Í hinum nýja úrskurði segir að sveitarstjórn Skútustaðahrepps hafi við undirbúning og málsmeðferð ákvörðunar um veitingu framkvæmdaleyfis; „...ekki í öllu gætt ákvæða skipulagslaga og náttúruverndarlaga auk þess sem sveitarstjórn fullnægði ekki rannsóknarskyldu sinni...“ samkvæmt gildandi stjórnsýslulögum. „Þykja þessir ágallar óhjákvæmilega leiða til ógildingar hinnar kærðu ákvörðunar,“ segir í úrskurði nefndarinnar.

Af þessu er ljóst að þeir sem hafa keyrt verkefnið áfram, frá upphafi, hafa ekki virt lög, ekki umhverfið og þess vegna er verkefnið strand. Það er til lítils að fara í fýlu þegar menn hafa arkað yfir á skítugum skónum. Hér er verk að vinna og það verða allir að sættast á. Frekjugangur dugar ekki alltaf, samt alltof oft.