Ég fékk nóg og hætti að horfa á þátt Ríkissjónvarpsins þar sem fyrrverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, gerðist dómari í eigin sök og felldi um sig einstaklega góða dóma. Kannski sagði hann eitthvað bitastæðara síðar í þættinum. Meðan ég horfði var allt sem forsetinn sagði á sömu bókina.
Mesta athygli vakti að fyrrverandi forseti hefur dregið úr sjálfsgagnrýninni þegar kemur að þátttöku hans í aðdraganda hrunsins. Nú spyr hann sig, hvað hefði verið sagt og gert ef forsetinn hefði ekki spilað með, í dómgreindarleysi áranna fyrir hrun. Já, hvað ætli þá hefði verið sagt og skrifað? Gefum okkur að forseti Íslands hefði þá séð að spilaborgirnar og draumahallirnar voru holar að innan. Að á Bessastöðum hefði ekki verið sjálfsali sem meira að segja gaf út einstakt meðmælabréfi til handa Kaupþingi. Þegar allt var að fara fjandans til.
Fyrrverandi forseti kvittaði, með eigin hendi, upp á Svavarssamninginn. Hann hefur ekki bakþanka þess vegna. Fyrrverandi forseti svaraði, í viðtali við mig í beinni útsendingu, fyrir forsetakosningarnar 2012, að fá mál hentuðu betur til þjóðaratkvæðis en lög um stjórn fiskveiða. 35 þúsund Íslendinga báðu hann vinsamlegast að staðfesta ekki lög um lækkun veiðiggjalds. Hann varð ekki við því. Ekki einu sinni þó svo hann hafi sjálfur svarað því til að málið væri kjörið til þess að senda það til þjóðarinnar.
Meira en 45 þúsund skoruðu á forseta Íslands að vísa til þjóðaratkvæðagreiðslu öllum lögum sem myndu heimila ráðstöfun fiskveiðiheimilda til lengri tíma en eins árs.Það gerði hann ekki.
Forsetinn fyrrverandi þurfti svo sem ekkert að nefna allt, og ekki endilega það sem hér er skrifað, en þar sem hann nefndi svo margt, margt annað og flest honum sjálfum til framdráttar, hefði hann svo sem alveg geta vikið að þessu, þó ekki væri nema fáum orðum.
Hann fann allavega ástæðu til að nefna Vigdísi Finnbogadóttur og þá staðreynd að hún varð ekki við áskorunum um að staðfesta ekki lögin um Evrópska efnahagssvæðið.
Það er svo sem ágætt að fyrrverandi forseti fari frá Bessastöðum án bakþanka.
Ólafur Ragnar Grímsson er mikill prýðismaður. Ég hef haft samskipti við hann í áratugi og almennt hafa þau verið með ágætum. Hann er skemmtilegur maður og hefur þægilega nærveru.