Alþingi er í ruslflokki

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að láta af þingmennsku við næstu kosningar. En hvers vegna? Hún segir það vera vegna þess að henni finnst kerfið standa fyrir nauðsynlegum breytingum. „Kerfið ver sig sjálft,“ segir hún.

Eitt af helstu baráttumálum Vigdísar hefur verið stofnun lagaskrifstofu Alþingis. Hún sagði mikil vonbrigði að hún fái ekki nægar undirtektir við það mál. „Meðan er Alþingi í ruslflokki.“

Vigdís segir kerfið verja sig sjálft. Þar undanskilur hún ekki eigin þingflokk eða þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Hún segir að ekki vera farið lengra með tillögur hagræðingarhópsins þess vegna. „Það er einsog við höfum gengið á vegg.“

„Ég var alfarið á móti haustkosningunum. Hver er eiginlega stjórnskipun landsins. Ég lagði til að annahvort sætum við til loka kjörtímabilsins eða boðað yrði til kosninga innan sex vikna,“ sagði hún og reiknar með að úr því sem komið er láti hún af þingmennsku í október.

„Ég hef alltaf stutt Sigmund Davíð og geri það enn,“ sagði hún, aðspurð um hvort hún telji best fyrir flokkinn að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stýri flokknum í komandi kosningum.