Allt fyrir kleinu

Isvaia er opinbert hlutfélag og þar gildir það sama og með önnur opinber hlutafélög að stjórnendurnir fara sínu fram. Stjórnendur Isvaia hafa öðlast landsfrægð fyrir vangetu í starfi. Nú á að sækja víðar. Stefnt er að heimsfrægð.

Og þá í hverju? Jú, fádæma smekkleysi. Kleinuhringja- og kaffirisinn Dunkin‘ Donuts hefur fengið rými í flugstöðinni okkar og gengur þá vel að losa erlenda ferðamenn, sem og okkur, við flest íslenskt í þessu anddyri Íslands.

Áralöng málaferli hafa verið vegna úthlutunar gæða innan flugstöðvarinnar og víst er að nú hefur tekist að framlengja þau ósköp.