Allra leiðir liggja til bretlands

Fimmti hver ferðamaður, hið minnsta, sem kemur til Íslands er Breti. Falli pundið áfram og lífskjör Breta versna er hætt á að skaði ferðaþjónustunnar hér getur orðið verulegur.

Trúlega verða áhrif á útgöngu Breta úr Evrópusambandinu til þess að það dragi úr ferðalögum þeirra. Kristján Sigurjónsson, ritstjóru turisti.is, sagði í morgun að Bretar hafi verið þriðji hver ferðamaður á Íslandi yfir vetrartímann.

Því er vá fyrir dyrum okkar.

Bretar hafi einnig verið meðal okkar helstu viðskiptavina með fisk. Mikil óvissa er um hvað verður.

Ekki er allt svo með öllu illt. Meðan gengi breska pundsins hrynur er kjörið að sækja Bretland heim.

Sigurjón M. Egilsson.