Áhorf á Hringbraut hefur tvöfaldast á fáum vikum.
Það er gaman í velgengni. Því er gaman á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Á örfáum vikum hefur áhorf á stöðina rétt um tvöfaldast. Að baki er mikil vinna allra starfsmanna og nokkrar ákvarðanir sem hafa verið teknar.
Til að mynda var ákveðið að beina vinnunni sem mest að upppbyggingu dagskrár sjónvarps Hringbrautar. Á meðan dagskránni var gjörbreytt og unnið er að öðrum breytingum var ákveðið að breyta til bæði í útvarpi og á vef, draga aðeins úr þjónustu. Þar verður sótt fram þegar fyrsta verkið er að baki, það er að efla og auka dagskrá sjónvarpsins.
Mikið er framundan. Eitt er að ná að auka áhorfið, annað er að viðhalda því sem unnist hefur. Starfsfólk Hringbrautar fyllist kappi við þær fínu viðtökur sem starf okkar hefur fengið.
Margt er framundan og munu áhorfendur okkar verða varir fleiri breytinga á næstu vikum.
Gangi starf okkar eins vel og það hefur gert til þessa, styttist í uppbyggingu á vef okkar, hringbraut.is og útvarps.
Verkin eru mörg og viji til sóknar er til staðar.
Takk fyrir okkur.
Sigurjón M. Egilsson.