Fyrir hálfum öðrum áratug runnu fjórir stjórnmálaflokkar í einn. Markmiðið var skýrt. Til átti að vera stór flokkur. Alvöru flokkur. Mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn. Jafnoki hans.
Flokkarnir voru; Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag, Kvennalisti og Þjóðvaki. Allt gekk með ágætum í fyrstu. Nú, hálfum öðrum áratug síðar er staðan önnur og langtum verri. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir sagði, í fréttum Ríkissjónvarpsins áðan, að draumurinn um Samfylkinguna væri á enda. Draumurinn er sem sagt búin, að óbreyttu.
Samfylkingin hefur nú aðeins þrjá þingmenn. Ef skipta á þeim upp milli þeirra sem stofnuðu til flokkinn er ljóst að lítið er til skiptanna. Dæmið gengur ekki upp þegar þarf að deila með fjórum í þrjá.
Augljóst er að framundan eru uppgjör innan Samfylkingarinnar. Hvort þau leiði til uppgjafar eða nýs lífs er auðvitað óvitað. En víst er að óbreyttu mun sannast það sem Sigríður Ingibjörg Ingadóttir sagði fyrr í kvöld.