Sigurður Ingi Jóhannsson er formaður Framsóknarflokksins og undir hans forystu mun flokkurinn, að öllu óbreyttu, þurfa að þola meira högg í komandi kosningum, en hann hefur áður mátt sætta sig við. Nafn Sigurðar Inga verður tengt hruni Framsóknarflokksins.
Ber Sigurður Ingi ábyrgð á hvernig komið er? Eða er það fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson?
Í dag vita allir Íslendingar nýjustu sögu Framsóknarflokksins og hvers vegna kosið er nú, en ekki í vor.
Sigmundur Davíð skilaði flokknum af sér með nítján þingmenn og flokkurinn fékk tæp 25 prósent í síðari kosningunum hans. Undir formennsku Sigurðar Inga stefnir í stærsta ósigur flokksins. Framsókn hrundi samt ekki í hans höndum.
Hvor mun í fyllingu tímans skrifast fyrir falli Framsóknar? Sigurður Ingi verður stutta svarið. Sigmundur Davíð verður hins vegar langa svarið.