Þegar Fréttablaðið var í hvað mestum blóma og ritstjórnin gat veitt sér þann munað að senda blaðamenn á milli landa til að afla frétta, sendi ég blaðamann til Þýskaands, í vonum að hann næði tali af bankastjóra, eða öðrum talsmanni Hauck & Aufhäuser.
Blaðamaðurinn sat á biðstofunni í fimm virka daga, ef ég man rétt, og þá dag kominn enginn sem gatt svarað fyrir bankann.
Eða var Hauck & Aufhäuser banki eða kannski bara sparisjóður? Blaðamanninum þótti lítið til þessa meinta alþjóðlega viðskiptabanka koma.
Allt var smátt í sniðum og sagði hann mér, í nokkrum af þeim ótal mörgu símtölum sem við áttum þessa daga, að hinn alþjóðlegi banki minnti öllu frekar á lítinn og forneskjulegan sparisjóð.
Trúlega fáum við að vita meira um Hauck & Aufhäuser verði farið að vilja umboðsmanns Alþingis og hann kannaður frekar.
Sigurjón M. Egilsson.