Viðskipti sem áttu sér stað fyrir 10 árum

Aðalmeðferð í svokölluðu Stím-máli hófst í síðustu viku í Héraðsdómi Reykjavíkur. Málið snýst um lánveitingu í nóvember 2007 og hvort starfsmenn bankans hafi farið fram yfir lánaheimildir sínar. Það eru liðin 10 ár frá meintu broti og allt að tvö ár í að málið verði tekið fyrir í Hæstirétti. Stenst þessi hægagangur réttafarsreglur um sanngjarna málsmeðferð? Samfélagið og stjórnvöld hafa þegar dæmt þessa bankastarfsmenn, er ekki nóg komið?