Vert að hafa í huga þegar eign er skoðuð

Sjöfn Þórðardóttir hefur tekið saman góð ráð fyrir fasteignakaupendur.

  • Skoðaðu vel ástandið á timburbúnaði um glugga, innan- og utanhúss.
  • Skoðaðu gluggana vel, er tvöfalt gler í öllum gluggum, eru sprungur í gluggum?
  • Skoðaðu hvort allar hurðir séu góðu ásigkomulagi.
  • Athugaðu gólf og hvort ástæða sé til að skipta um gólfefni, til dæmis þarf að slípa eða pússa parket?
  • Eru allir ofnar í góðu ástandi? Eru hitastillar á ofnum nýlegir? Hefur lekið frá ofnum? Er hiti í gólfum?
  • Hefur orðið vart við utanaðkomandi leka í eigninni? Skoðaðu vel kverk­ar meðfram þaki, hvort þar sjáist merki um að hafi lekið nýlega.
  • Opnaðu fasta skápa og skúffur í svefnherbergjum og í eldhúsinnréttingu.
  • Skoðaðu hreinlætistæki og spurðu um ástand þeirra.
  • Skoðaðu vel tæki og tól, sem fylgja með í eldhúsi, og aflaðu upplýsinga um aldur þeirra og ástand.
  • Hvernig er ástandið á vatnslögnum fyrir heitt og kalt vatn? Athugaðu vel að þess er ekki krafist af seljanda að hann geti eða megi vita og þar með upplýst um leynda galla á vatnslögnum.
  • Hvernig er ástandið á fráveitu, skólplögnum? Athugaðu vel að þess er ekki krafist af seljanda að hann geti eða megi vita og þar með upplýst um leynda galla á fráveitulögnum.
  • Er dren við húsið? Er dren í lagi? Dren er lögn sem hindrar að vatn í jarðvegi leggist utan á neðstu hluta byggingar og valdi þar rakaskemmdum. 
  • Gættu vel að því hvernig eignin snýr að sól. Snúa svalir í sólarátt? Er eignin björt?
  • Mikilvægt er að spyrja hvort fyrir­hugaðar séu framkvæmdir á húsinu eða í sameign og hvort kostnaður af þeim lendi á kaupanda eða seljanda. Framkvæmdir á skólpi, dreni og þess háttar eru dýrar og ef slíkar fram­kvæmdir eru á döfinni er sjálfsagt að slá það af verði íbúðarinnar þegar þú gerir tilboð - nema ef ásett verð taki mið af fyrirhuguðum framkvæmdum.
  • Ef eign er í fjölbýli skaltu spyrja um framkvæmdasjóð og hversu mikið fé er í þessum sjóði. Framkvæmdasjóður fylgir ævinlega með til kaup­anda.

Ef þú telur þig ekki búa yfir nægilegri þekkingu til að skoða ástand eignar getur verið skynsamlegt að biðja kunnáttumann, eins og iðnaðarmann, að skoða með þér eignina, ekki síst ef hún er í húsi sem er komið nokkuð til ára sinna.

Heimildir fengnar á heimasíðu Tryggingamiðstöðvarinnar.

Fyrri heilræði Sjafnar fyrir fasteignakaupendur:

Hversu hátt lán getur þú fengið fyrir fasteignakaupum?