Túrtappar lækka um 28%

ASÍ hefur gert verðkönnun og borið saman vöruverð nú og fyrir ári. Niðurstaðan er að verðlag hefur hækkað þrátt fyrir hækkað gengi og lága verðbólgu. Samkvæmt ASÍ vantar skýringar á hækkun vöruverðs fyrir neytendur og þá ekki síst hvað varðar mjólkurvörur.

Þegar bornar eru saman verðkannanirnar sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi í maí 2015 og nú í apríl 2016 má sjá að mjólkurvörur, ostar, kjötvörur og drykkjarvörur hafa almennt hækkað á milli kannana en innfluttar vörur í flestum tilvikum lækkað í verði. Af þeim vörum sem bornar eru saman í þessum tveimur mælingum má sjá þessar verðbreytingar endurspeglast í öllum verslunum. Á tímabilinu hefur almennt verðlag verið stöðugt og gengið styrkst um 9%.

Í öllum verslunum hefur vöruflokkurinn ostur, viðbit og mjólkurvörur hækkað en þar má m.a. sjá mikla hækkun á stoðmjólk eða á bilinu 4% - 9%. Þá hefur KEA kókosskyr, 200 g. hækkað um allt að 11%, 400 g. af MS rjómaosti til matargerðar hefur hækkað um allt að 8% og 250 g. af ósöltuðu smjöri hefur hækkað um 9% til 17%. Athygli vekur að nær allar vörur sem skoðaðar vöru í þessum vöruflokki hafa hækkað í verði í öllum verslunum á tímabilinu að undanskildu innflutta viðbitinu Bertolli sem hefur lækkað um allt að 7%.

Innfluttar vörur lækka

Af þeim vörum sem skoðaðar voru eru flestar þær sem hafa verið að lækka í verði á milli mælinga innfluttar vörur og má þar m.a. nefna Holger hveiti bruður sem hafa lækkað um allt að 13% og Pågen hveiti bruður sem hafa lækkað um allt að 16%. River grjón í 1 kg. umbúðum hafa einnig lækkað í verði, um allt að 28% sem og túrtappar frá o.b. sem hafa lækkað á bilinu 11% - 28%.

Heimsmarkaðsverð á kaffi hefur lækkað undanfarið ár sem ætti samhliða sterkara gengi að skila sér í verðlækkun á kaffi. Í samanburðinum voru skoðaðar nokkrar tegundir af kaffi. Má þar t.d. nefna Merrild mellemristet sem hefur lækkað á bilinu 3% - 16% og Senseó columbia 16 stk. sem hefur lækkað á bilinu 1% - 18%. Kílóverð á Morgundögg frá Kaffitári hefur hins vegar hækkað í verði um 11% - 25% en í fyrra var innihald pokanna minnkað úr 500gr. í 400gr. án þess að það endurspeglaðist í verði vörunnar.

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðarkaupum, Samkaupum Úrval, Hagkaupum, Víði og Iceland.