Truflaðar blinis með þeyttum geitaosti og hunangi

Gleðilegt nýtt ár og beztu þakkir fyrir samfylgdina á árinu sem var að kveðja kæru lesendur. Í tilefni nýja ársins, 2020, er lag að fagna með truflað góðum blinis og skála í ljúffengu kampavíni. Þegar til stendur að halda hátíðlegt nýárspartí og ykkur langar virkilega til að fá gestina til að standa á öndinni yfir veitingunum, þá eru þessar trufluðu blinis með þeyttum geitaosti og hunangi málið. Hægt er að leika sér með sælkera kræsingar ofan á blinis pönnukökurnar og vera með sýrðan rjóma og kavíar, reyktan lax og piparrótarsósu eða hvaðeina sem bragðlaukarnir elska. 

Að bjóða fram girnilegar blinis með þessari geggjuðu blöndu ofan á og bera fram glæsilega framreidda drykki, þá er nýárspartíið ykkar skothelt.  Ég baka ávallt mínar eigin blinis þegar mikið stendur til og þeyti geitaost og toppa með hunangi ofan á geitaostinn, eitthvað sem bragðlaukarnir elska að njóta.  Ég breyti líka til og er stundum með sýrðan rjóma og kavíar, reyktan lax og piparrótarsósu eða jafnvel lax og þeyttan rjómaost. 

Blinis að hætti Sjafnar

25 – 30 stykki

400 g bókhveiti

2 tsk salt

6 dl volg mjólk (má nota laktósafría mjólk)

4 egg

1 dl ólífuolía

Blandið þurrefnunum saman í skál, hellið volgri mjólk út í smátt og smátt og hrærið vel í. Bætið síðan við ólífuolíunni og eggjum út í og látið skálina standa á hlýjum stað í eina klukkustund. Bakið örlitlar blinis á pönnukökupönnu við meðalhita.  Gott að vera með litla ausu sem gefur passlegan skammt. Miða við að fjórar bliniskökur séu bakaðar í einu á pönnukökupönnunni.  Þegar bliniskökurnar eru orðnar kaldar eru þær skreyttar með geitaostinum og hunanginu.

Þeytt gourmet geitaostablanda toppuð með hunangi

150 g af mjúkum geitaosti

4 tsk rjómi

búnt af myntu, saxaðri

búnt af steinselju, saxaðri

raspaður sítrónubörkur af ½ sítrónu

fljótandi hunang eftir smekk

Þeytið geitaostinn annaðhvort með handþeytara eða í hrærivél þar til hann er orðinn léttur og fagur, bætið síðan við og þeytið saman 4 teskeiðum af rjóma.  Blandið saman litlum skammti af fín söxuðum laufum af myntu og steinselju búnti, rifnum sítrónubörki  af ½ sítrónu og kryddi eftir smekk.  Notið blönduna til að setja á blinispönnukökurnar og í framhaldi úðið örlítið af fljótandi hunangi. Skammturinn passar á um það bil 25 til 30 blinis.

Verði ykkur að góðu og njótið vel.