Syndsamlega ljúffeng djöflaterta

Við höldum gjarnan í gamlar góðar hefðir og nýtum sunnudagana til að bjóða fjölskyldumeðlimum í gott sunnudagskaffi og bjóðum upp á veitingar sem lagaðar eru úr uppskriftum sem hafa verið í fjölskyldunni í áratugi og njótum þess að kitla bragðlaukana.

Mælum eindregið með þessari syndsamlegu ljúffengu Djöflatertu í kaffinu í dag.

 

Syndsamlega ljúffeng Djöflaterta að hætti ömmu 

1 ½ bolli hveiti

1 ¼ bolli sykur

½ bollli kakó

1 ¼ tsk. matarsódi

¼ tsk. salt

2/3 bolli mjólk (má vera laktósafrí)

2/3 bolli íslenskt smjör

1 tsk. vanilludropar

2 meðalstór egg

1/3 bolli mjólk

 

Djöflatertukremið

345 gr flórsykur

2 mtsk. kakó dökkt

120 gr íslenskt smjör

1 stk egg

Hitið ofninn í 200°C og smyrjið miðlungs stórt form og sáldrið hveiti yfir allt formið og bankið lausa hveitið úr. Setjið til hliðar meðan hráefnið er að blandast saman. Setjið fyrst saman í skál öll þurrefnin, hveiti, sykur, kakó, matarsóda og salt. Hrærið vel saman. Síðan setjið 2/3 bolla af mjólk (ekki alla mjólkina strax, þess vegna er hún skráð í tveimur hlutum), smjörið og vanilludropana og hrærið vel saman. Loks setjið þið eggin ásamt 1/3 bolla af mjólk og hrærið vel. Hellið í formið og tryggið að deigið liggi jafnt í forminu. Bakið í miðjum ofni í 30-40 mínútur eða þar til þið sjáið að kakan hefur losnað frá kantinum. Getið notað prjón og stungið í og sjáið ef hann kemur hreinn út þá er kakan tilbúin. Takið kökuna úr forminu á þann disk sem þið ætlið að bera hana fram á og látið kólna áður en kremið er smurt á.

Djöflatertukremið þeytt saman

Þegar kakan hefur kólnað þeytum við kremið. Setjið saman flórsykur, kakó, smjör og egg og þeytið vel saman þar til kremið er orðið þétt og slétt í sér, kekkjalaust. Smyrjið kremið ofan á kökuna og skreytið að hjartans list. Berið Djöflatertuna fram með þeyttum rjóma, jarðaberjum og hvaðeina sem bragðlaukarnir girnast.