Nýbyggingar fjölga íbúðum á sölu

1.880 íbúðir voru settar á sölu í janúar, sem er mesta framboð sem hefur mælst undanfarin sjö ár. 154 prósent fleiri nýjar íbúðir voru settar á sölu árið 2018 samanborið við árið 2017. Mikill meirihluti íbúða selst undir ásettu verði á höfuðborgarsvæðinu, eða 83 prósent. Fjölgun íbúða í fyrra er sú mesta síðan 2008. Þetta eru meðal helstu niðurstaðna nýrrar mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. 

Íslenski fasteignamarkaðurinn einkennist nú af byggingu nýrra íbúða. Sést þetta meðal annars á fjölgun þeirra á skrám fasteignasala en óvenju margar nýbyggingar komu inn til sölu í janúar sl., eða 362 íbúðir yfir landið allt. Aðeins einu sinni frá árinu 2013 hafa fleiri nýbyggingar verið settar á sölu í stökum mánuði. Sé litið til alls síðasta árs, þá var 154 prósent aukning í skráningu nýrra íbúða til sölu samanborið við árið 2017.

Þá má nefna að í heildina voru 1.880 íbúðir settar á sölu í janúar sem er einnig mesta framboð íbúða sem mælst hefur á einum mánuði á undanförnum sex árum.

Hlutfall íbúða sem seljast yfir ásettu verði hefur ekki mælst jafnlágt síðan í byrjun árs 2013. Aðeins 4% íbúðaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í janúar áttu sér stað yfir ásettu verði. 14% íbúða seldust á ásettu verði og 83% undir ásettu verði.

Í janúar voru alls 756 leigusamningar þinglýstir hér á landi, sem er 16 prósent fjölgun frá sama mánuði í fyrra. Flestum leigusamningum utan höfuðborgarsvæðisins var þinglýst á Suðurnesjum. Þar voru þeir alls 78 talsins, sem samsvarar 18 prósent fjölgun frá fyrra ári.

Íbúðum á landinu öllu fjölgaði um 2.400 í fyrra og eru þær nú 140.600 talsins. Til samanburðar fjölgaði íbúðum um 1.800 árið 2017. Um er að ræða mestu árlegu fjölgun íbúða síðan 2008. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði íbúðum um 542. Utan höfuðborgarsvæðisins varð mesta fjölgunin í Reykjanesbæ, þar sem 227 íbúðir bættust við.

Heildarfjárhæð greiddra húsnæðisbóta í janúar var tæplega 530 milljónir kr., sem samsvarar 7 prósent aukningu frá því í desember þegar 496 milljónir kr. voru greiddar út. Hækkunin skýrist meðal annars af því að félags- og barnamálaráðherra staðfesti breytingu á reglugerð nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, sem hækkaði frítekjumörk húsnæðisbóta frá og með 1. janúar 2019.