Hvernig viltu fá eggin þín?

Albert Eiríksson matarbloggari og sælkeri með meiru deilir með okkur hvernig eggin líta út eftir suðu eftir mislangan tíma.

Á myndinni sést vel hvernig eggin verða eftir 6, 7, 8, 9, 10, 11 og 12 mínútur. Veldu tímann á suðunni eftir því hvernig þú vilt fá eggið þitt. Eftir suðu er gott að kæla eggin strax með því að láta renna á þau kalt vatn.

Albert er með er með heimasíðuna www.alberteldar.com