Guðdómleg sólskinsterta með löðrandi, ljúffengu karamellukremi

Í þættinum Fasteignir og heimili á dögunum ræddi Sjöfn Þórðar við Albert Eiríksson matarbloggara og sælkera með meiru um ýmsar matartengdar hefðir og enduðu þau á því að fá sér sólskinstertu sem Albert bauð upp á í tilefni sumarsins. Sólskinstertan var guðdómlega ljúffeng og kremið lostæti, að sögn Sjafnar.

Sólskinstertu hefur móðir Alberts bakað á sumardaginn fyrsta í yfir hálfa öld. Heima hjá honum var þessi terta aldrei bökuð á öðrum tíma.  „Hún er kannski ekki sú hollasta en það er gaman að halda í hefðir og bragðgóð er hún – því get ég lofað,“ segir Albert og brosir sínu breiðasta. „Hafið í huga að þetta er frekar lítil uppskrift, oftast hef ég hana tvöfalda. Stundum minnka ég smjörmagnið og nota 2 til 3 matskeiðar af matarolíu, þannig verður hún mýkri,“ segir Albert að lokum. 

Þáttinn má sjá hér:

Hér getur svo að líta uppskriftina góðu að sólskinstertunni, en Albert heldur úti heimasíðunni www.alberteldar.com og hægt er að finna þar ýmsar góðar uppskriftir.

Sólskinsterta

120 g smjör

1 dl sykur

2 egg

1 1/2 dl hveiti

1 tsk. lyftiduft

1 tsk. möndludropar

1/2 tsk. salt

Hitið ofninn í 180°gráður. Hrærið smjör, sykur og egg saman. Blandið þurrefnunum saman, hrærið vel saman og hellið deiginu í lítið smurt smelluform. Bakið við 180°gráður, í um það bil 20 mínútur. Látið kökuna standa stutta stund áður en kreminu er hellt yfir. Berið restina af kreminu fram með kökunni.

Kremið

2 dl rjómi

120 g sykur

2 msk síróp

1 tsk salt

30 g smjör

1 tsk vanilla (extract)

Sjóðið rjómann, sykurinn og sírópið saman, við vægan hita, þar til blandan fer að þykkna. Hrærið smjörinu, salti og vanillu saman við og látið kremið kólna lítið eitt áður en því er smurt á kökuna.

Njótið vel og gleðilegt sumar.