Góð ráð fyrir fasteignakaupendur þegar kemur að frágangi lána og þinglýsingu

Sjöfn Þórðar heldur áfram með heilræði fyrir fasteignakaupendur. Að þessu sinni minnir hún á mikilvægi þess að fara vel yfir allt það formlega sem fylgir því að fjárfesta í eign sem varða yfirtöku lána, veðflutning og aflýsingu lána svo dæmi séu tekin.

1. Yfirtaka lána
Þegar kaupendur eru að yfirtaka lán, sem hvíla á eign, þarf samþykki fyrir því hjá viðkomandi kröfuhafa. Staðfesting á yfirtöku lána liggur fyrir við undirritun kaupsamnings eða gengið frá því samhliða kaupsamningsgerð. Lífeyrissjóðir og sumar lánastofnanir óska eftir því að gengið sé frá skuldaraskiptum skriflega annað hvort hjá fasteignasölunni eða hjá viðkomandi lánveitanda. Huga þarf að því að sumir lánveitendur hækka vaxaprósentu við yfirtöku lána. Fasteignasalinn sér venjulega um tilkynningu um skuldaraskiptin.

2. Veðflutningur
Flest lán má flytja milli eigna. Kanna þarf sérstaklega hjá hverri lánastofnun þau skilyrði sem sett eru vegna þessa. Ætlaðu þér a.m.k. 10-15 daga til veðflutnings. Mikilvægt er að leita ráða hjá fasteignasalanum þínum vegna veðflutninga/veðheimilda.

3. Aflýsing lána
Athugaðu vel rétt þinn til að halda eftir greiðslu, ef seljandi hefur ekki aflýst áhvílandi lánum á umsömdum degi. Aðeins má halda eftir greiðslu sem nemur fjárhæð þess/þeirra láns/lána sem aflýsa á eða nota greiðsluna til þess að greiða lánið upp auk kostnaðar sem falla kann á.

4. Eignaréttur/áritun
Mundu að kaupandi fasteignar verður ekki fullkomlega löglegur eigandi fyrr en hann hefur látið þinglýsa afsali, fram að því er hún í sameign seljanda og kaupanda. Þess vegna er nauðsynlegt að þinglýsa afsali þó svo að kaupsamningi hafi verið þinglýst áður

5. Ráðstöfun fasteignar
Aðeins þinglýstur eigandi, afsalshafi, getur ráðstafað (selt eða veðsett) fasteign. Ef þú hyggst selja eignina sem þú átt samkvæmt kaupsamningi, það er að segja afsal hefur ekki verið gefið út, verður fyrri eigandi að árita kaupsamninginn til þess að nýr kaupandi geti þinglýst sínum samningi. 

6. Samþykki maka
Samþykki maka þinglýsts eiganda þarf fyrir sölu og veðsetningu fasteignar, ef fjölskyldan býr á eigninni eða ef eignin er notuð til atvinnurekstrar beggja hjóna eða annars þeirra.

7. Geymið öll skjöl vegna fasteignakaupanna
Varðveitið gaumgæfilega öll skjöl sem snerta fasteignaviðskiptin, saman ber kaupsamning, afsal, veðskuldabréf, allar kvittanir, afborganir af lánum, greiðslu fasteignagjalda, húsgjalda og fleira. Sú hirðusemi kemur sér ávallt vel síðar meir.

 

Heimildir fengnar á vef Félags fasteignasala www.ff.is