Miðað við árið sem senn er að líða mætti halda að Ísland sé einhvers konar efnahagslegt undur norðursins. Það er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði 5%, verðbólga innan við 2% og atvinnuleysi rétt rúmlega 2% og horfur eru góðar. Engu að síður var krónan að sveiflaðist mikið á árinu, fyrst með 15% styrkingu á fyrra hluta árs sem gekk svo til baka með um 20% veikingu. Á árunum 2011 til 2017 hafa laun hækkað um 63% og fasteignaverð á höfuðborgasvæðinu um 94%. Á þessu ári hafa bankar og lífeyrissjóðir lánað yfir 200 ma.kr. til íbúðakaupa, að langmestu leyti verðtryggð lán. Reynslan sýnir hins vegar að það kemur alltaf bakslag með tillheyrandi falli krónunar og verðbólgu. Ætlum við aldrei að læra neitt?
Stöðugleiki eða hvað?
Fleiri fréttir
Nýjast