Afnám sykurskatts skilar sér ekki

Verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands hefur skoðað hvort afnám sykurskatts hafi skilað sér til neytenda og er niðurstaða þess að svo sé ekki nema að litlum hluta.

Vörugjöld af sykri, svonefndur sykurskattur var afnuminn um síðustu áramót. Á sama tíma var virðisaukaskattur á matvöru hækkaður úr 7% í 11%. Áhrif breytinganna voru misjöfn eftir vörum allt eftir því hve mikinn sykur/sætuefni viðkomandi vara innihélt og hvert verð hennar var í upphafi. 

Dæmi um sætar mat- og drykkjarvörur sem báru sykurskatt eru sykur, molasykur, púðursykur, gosdrykkir, ís, sultur, grautar, ávaxtamauk, kex, sætabrauð, súkkulaði, sælgæti, sætar mjólkurvörur og sætt morgunkorn. 

Verðlagseftirlitið áætlaði að vöruflokkurinn sykur, súkkulaði, sælgæti og fleira myndi lækka u.þ.b. um 10% að meðaltali, en í honum eru allar ofantaldar vörur nema sætar mjólkurvörur og morgunkorn. 

Samkvæmt vísitölu neysluverð þá lækkaði vöruflokkurinn hins vegar aðeins um 4,6% á tímabilinu ágúst 2014 til október 2015. Þetta er mun minni lækkun en verðlagseftirlitið áætlaði.