Íslensk hönnun og húsgögn í suðurstofu bessastaða – „eigum að vera stolt af því sem er hannað og framleitt hér á landi“

Síðastliðinn föstudag tók Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, við íslenskum húsgögnum sem verða til sýnis og notkunar í suðurstofu Bessastaða. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir samtökin fagna því að einn af sölum Bessastaða hafi verið helgaður íslenskri hönnun og húsgagnagerð.

Sigurður er gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.

Í fréttatilkynningu frá SI var haft eftir Sigurði: „Forseti Íslands er verndari átaksins Íslenskt – gjörið svo vel og liður í því átaki er að íslensk húsgögn verði sýnileg í opinberum byggingum. Samstarfið við forseta Íslands hefur verið einkar ánægjulegt og einkennst af áhuga og velvilja. Á Bessastöðum hefur verið stillt upp á fallegan hátt íslensku handbragði og hönnun. Það á að vera sjálfsagt mál að íslensk húsgögn sjáist í öllum opinberum byggingum hér á landi og þá ekki síst þar sem almenningur og erlendir gestir fara um.“

Hann telur að aðrir ráðamenn þurfi að huga að þessu í ríkari mæli. „Við eigum að vera stolt af því sem er hannað og framleitt hér á landi og hvetja til frekari verka á því sviði. Þannig má styrkja ímynd Íslands og rækta orðspor okkar með tilheyrandi verðmætasköpun. Þá er í auknum mæli horft til umhverfisverndar og kolefnisfótspors en þar geta íslenskir framleiðendur staðið framarlega.“

Húsgögnin, sem eru verk íslenskra hönnuða og framleidd á vegum íslenskra fyrirtækja, voru afhent forseta Íslands á grundvelli samkomulags við Samtök iðnaðarins og lýsti forseti í ávarpi ánægju með þessi kaflaskil en hingað til hafa nánast öll húsgögn á forsetasetrinu komið frá öðrum löndum.