Fágað og stílhreint á jólunum, meira glamúr og glimmer á áramótunum

Það styttist óðum í aðventuna og jólahátíðin er skammt undan.  Í tilefni þess heimsækir Sjöfn Þórðar, Elvu Hrund Ágústsdóttur stíllista, í lífsstílsverzlunina Fakó þar sem hún ætlar að dekka fyrir upp hátíðarborð fyrir jóla- og áramótamatarboðin. Elva sýnir okkur góðar hugmyndir fyrir umgjörð borðhaldsins sem framundan er.  „Borðið fyrir jólin er hátíðlegt, fágað og stílhreint en þegar kemur að áramótunum leyfum við okkur meira. Þá er meira um glimmer og glamúr og borðhald frjálsar,“ segir Elva og veit fátt skemmtilegra en að dekka hátíðarborð.  Sjón er svo sannarlega sögu ríkari.

Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og aftur klukkan 22.30.