7 atriði sem þú veist örugglega ekki um geispa!

Við gerum þetta öll, bæði menn og dýr, en samt er mjög lítið vitað um hvers vegna. Já, við erum að tala um að GEISPA. Eitthvað sem við gerum þegar við erum þreytt, erum við það að sofna eða erum í ró. Vísindamenn hafa átt í nokkrum erfiðleikum með þetta og því eru ýmsar kenningar um, hvers vegna við geispum og þó hafa flestar kenningar verið umdeildar og jafnvel rannsakaðar þannig að þær afsannist. Ástæðan fyrir því að við geispum er því nokkuð óljós en það er samt gaman að renna yfir nokkrar staðreyndir, sem teljast sannar um geispa.

1. Leiðindi.

Já, sumir segja að við séum líklegri til að geispa, þegar okkur leiðist og hafa sumir vísindamenn því rannsakað geispa útfrá þessu.

\"\"2. Smitandi.

Já, margir hafa gert rannsóknir á þessu og svo virðist sem það þurfi oft ekki nema einn að geispa, þá fara einhvern veginn fleiri í sama hóp að geispa stuttu síðar.

3. Smitar nána meir en aðra.

Í rannsókn sem gerð var árið 2012, sýndu niðurstöður ekki aðeins að geispi virkaði eins og smitandi í hópum, heldur er fólk líklegri til að smitast af geispa annarra, ef viðkomandi er frekar náinn vinur eða ættingi.

4. Í kulda.

Í einni rannsókn, sem fjallað var um í National Geographic, er því haldið fram að við geispum frekar í kulda en hita. Af því leiðir, geispum við oftar á veturnar.

\"\"5. Getur táknað veikindi.

Í einhverjum tilfellum, er sagt að geispi geti verið vísbending um veikindi og þá erum við til dæmis að tala um sjaldgæfa hjartasjúkdóma og eða jafnvel í heila. Þetta á þó eingöngu við ef viðkomandi er að geispa óvenju oft og oftar en aðstæður kalla almennt til.

6. Fóstur geispa.

Já, börn í móðurkviði geispa rétt eins og við hin. Krúttleg staðreynd sem rannsóknir hafa sannað og getur til dæmis sést vel á þrívíddarmyndum af barni í móðurkviði.

7. Geispi varir í 6 sekúndur.

Samkvæmt rannsóknum eru 6 sekúndur meðaltalstími geisps.

Huffingtonpost

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!