Viltu myndast betur? 6 góð ráð

Auðvitað viljum við öll myndast frekar vel og oft skiljum við ekki hvernig öðru fólki tekst alltaf að vera svo flott á myndum en aldrei okkur sjálfum! En viti menn: Í þessu eru til góð ráð eins og í öllu öðru og oft þarf bara að huga að smávægilegum atriðum í stellingum, til að tryggja að myndin komi betur út. Ljósmyndarinn Jodee Ball, tók saman nokkrar myndir og birti á vefsíðunni þar sem hún skýrir út myndrænt, hvernig stellingar geta hjálpað okkur í þessum efnum.

Á myndunum hér á eftir, eru nokkur dæmi. Vinstri myndin er þá sýnishorn af því hvernig við eigum EKKI að vera, en myndin til hægri, sýnir hvernig smáatriði gera gæfumuninn.

1. Stilltu þér upp þannig að stellingin sé afslöppuð. Að sveigja mjöðminni aðeins til hliðar, kemur betur út en að standa alveg bein.

\"\"

2. Ekki snúa líkamanum beint að myndavélinni, heldur um 3/4 til hliðar.

\"\"

3. Passaðu hendurnar.

\"\"

4. Þegar þú stendur á hlið, settu aðra öxlina aðeins niður.

\"\"

5. Ekki standa alveg bein, beygðu annað hné lítillega og fremri fótinn þannig aðeins framar en hinn.

\"\"

6. Ekki snúa andlitinu beint framan í myndavélina, sveigðu höfuðið aðeins fram og til hliðar.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!