Vildi ekki að carrie og mr. big myndu enda saman

Höfundur Sex and the City, Darren Starr, sagði frá því í viðtali á dögunum, að hann hefði ekki viljað að Carrie Bradshaw og Mr. Big, myndu enda saman í þáttunum. Helst hefði hann því viljað að Carrie, sem leikin var af Söruh Jessicu Parker, hefði enn verið einhleyp þegar þáttaseríunum lauk.

Þetta var þó ekki vegna þess að hann var eitthvað á móti karakter Mr. Big eða fannst hann ekki nógu góður fyrir aðalsöguhetjuna Carrie. Fyrst og fremst fannst honum langvarandi samband þeirra vera of mikill viðsnúningur, frá upphaflegri hugmynd þáttanna. Hún gekk út á konur í stórborg, sem væru einhleypar og ekki að ná að finna hamingjuna í samböndum eða hjónaböndum.

 ,,Það var í rauninni það, sem hélt konum við skjáinn,” hefur New York Post eftir Starr. Samstarfsmenn Starr voru hins vegar á öðru máli og vildu að líf Carrie þróaðist í aðrar áttir. Í lok myndarinnar Sex and the City 2, var það því aðeins ein í vinkonuhópnum, sem enn hélt stöðu sinni sem einhleyp kona í stórborg, en það var þþá að sjálfsögðu Samantha Jones, sem Kim Cattrall lék.

\"\"

Við mælum með:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!