Verður jarðaður í kyrrþey, fjölskyldan biður um næði

Fjölskylda David Bowie tilkynnti í dag, að jarðaför Bowie verður haldin í kyrrþey. Á aðdáendasíðu Bowie á Facebook segir:
 
,,Fjölskyldan er í óða önn að undirbúa minningarathöfn sem fer fram í kyrrþey, til að minnast ástkærs eiginmanns, föðurs og vinar. Enn og aftur, óskar fjölskyldan eftir því að fá næði á þessum sorgartíma. Við erum þakklát þeim stuðningi og kærleik sem við höfum fundið hvaðanæva úr heiminum.”

David Bowie lést síðastliðinn sunnudag, þá nýorðinn 69 ára gamall. Á afmælisdaginn hans, var gefin út síðasta albúmið hans, Blackstar, og nokkrar nýjar myndir af Bowie birtar á aðdáendasíðum hans. Nú eru vangaveltur um, hvenær þær myndir voru teknar. Sögusagnir eru um að það hafi aðeins verið nokkrum dögum áður en Bowie lést, en aðrir segja lengra síðan. Hér má sjá eina af þeim myndum sem verið er að tala um, en myndirnar eru taldar síðustu myndirnar af Bowie á meðan hann lifði.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!