Varúð! mygla gæti leynst í stútkönnum ungbarna (myndir)

Það er stórmál í gangi núna ytra, sem fyrst vakti athygli á Facebook í frönskumælandi Kanada. Málið snýst um myglusvepp, sem mjög auðveldlega getur leynst í stútkönnum ungbarna. Og það sem verra er: Börnin verða veik, en foreldrarnir eru ekki að sjá mygluna!

Stútkönnurnar sem eru í umræðunni eru frá framleiðandanum Tommee Tippee í Frakklandi. Í síðustu viku, birtu Marie-Pier L’Hostie og Penny Powell frá Montreal í Kanada, myndir á Facebook sem sýndu myglusvepp innan í loki á stútkönnu barns. Þar sem myglan var inni í lokinu, var hún ekki sjáanleg nema með því að opna upp sjálft lokið.

\"\"

Svo virðist sem myglan myndist í stykkinu sem heldur lokinu saman. Lok sem virðist því vera alveg hreint, gæti verið uppfullt af myglusvepp.

\"\"\"\"

Eftir að myndirnar birtust á Facebook, fóru fleiri og fleiri foreldrar að birta sams konar myndir. Á endanum sagði Buzzfeed frá þessu og hafði samband við framleiðandan.  Þeir sendu eftirfarandi tilkynningu til Buzzfeed:

,,Við höfum komist af því í kjölfar myndbirtinganna að sumir eru ekki á eitt sáttir við hvernig lokið er hannað á stútkönnunum okkar. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu getur hlotist en erum að vinna í málunum.”

Tommee Tippee birti líka mynd, með leiðbeiningum til foreldra um hvernig væri best að þrífa innan úr lokinu, þannig að mygla myndi ekki myndast.

\"\"

Margir foreldrar hafa hins vegar verið að skrifa ummæli um það á Facebook að sú aðferð sem þarna er verið að benda á, sé ekki að virka sem skyldi.

 \"\"

\"\"

\"\"

Að sögn Huffingtonpost, komst málið fyrst upp vegna þess að sonur vinafólks Marie-Pier L’Hostie og Penny Powell, hafði verið mjög veikur. Talið er nokkuð víst, að veikindi barnsins, hafi stafað af myglusveppnum í glasinu hans. Zetan telur fulla ástæðu til að benda foreldrum ungra barna á að skoða hvort ástæða sé til að opna lok á stútkönnum barna sinna, til að athuga hvort myglu eða önnur óhreinindi sé að finna þar.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!

Viltu vinna þér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKORT?

Spyr.is er í samstarfi við Tölvísi um kannanir sem fólk getur tekið þátt í og fengið greitt fyrir. Með skráningu í viðhorfshóp Tölvísi er möguleiki á að vinna sér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKort en dregið verður úr nýjum meðlimum  í lok mars. Tölvísi er hluti af alþjóðlegu umsjónarkerfi viðhorfahópa að nafni Cint sem hefur höfuðstöðvar í Stokkhólmi. Cint hefur umsjón með yfir 1.500 viðhorfahópum með alls 19 milljónum meðlima í yfir 65 löndum. Þátttakendur fá greitt fyrir að svara könnunum. Skráðu netfangið þitt með því að smella HÉR