Var með 6 metra langan bandorm í líkamanum

Úff! Ætli það sé ekki best að benda klígjugjörnum á að hætta að lesa strax, því það er ekki laust við að það fari um mann við að lesa um 38 ára gamlan mann, sem var með 6 metra langan bandorm í líkamanum. Maðurinn fór upphaflega til læknis, því hann léttist á ógnarhraða. Þá hafði hann verið að finna fyrir óþæginum í maga, ógleði og verið að kasta upp í töluverðan tíma. Hann hafði farið til læknis, án þess að nokkuð hafði að fundist. En þegar kílóin virtust fjúka af á einhverjum dögum, stóð honum ekki á sama og óskaði eftir nánari rannsókn.

Sem betur fer!

Það sem kom í ljós var ekki bara 6 metra langur bandormurinn, heldur egg líka. Maðurinn sagðist hrifinn af rauðu kjöti og væri því oft að borða frekar lítið eldað kjöt, eða nánast hrátt. Bandormurinn sem í honum fannst, kom úr nautakjöti og var af tegundinni ,,Taenia saginata.” Sá bandormur getur lifað í mannslíkama mjög lengi, jafnvel mörg ár. Meðal þess sem maðurinn sagðist borða mikið af, er óeldað hakk.

Sem hann er án efa hættur að gera nú!

Sagt var frá bandorminum í tímaritinu Live Science, en samkvæmt Newser, hefur lengsti bandormurinn sem fundist hefur í mannslíkama af þessari tegund, verið ríflega 10 metrar að lengd.

Talið er að bandormurinn hafi verið í líkama mannsins í um tvö ár. Oft eru einkenni í fyrstu mjög væg, til dæmis smá uppþemba eftir máltíðir eða smá ógleðistilfinning. Þegar bandormurinn er hins vegar orðinn mjög stór, verða einkennin mun meiri eins og raunin varð hjá viðkomandi. Í frétt Newser um málið, kemur þó fram að maðurinn hafi fengið lyf og væri heill heilsu í dag.

Hmm.... viltu steikina þína ,,well done\" eða ,,medium raw\" eftir að hafa lesið þetta?

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

 

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!