Væri raunhæft að justin bieber eignaðist íslenska kærustu í haust?

Þið getið rétt ímyndað ykkur fjölda aðdáenda Justin Bieber og ungar yngismeyjar á Íslandi eru eflaust margar í hópnum, eins og reyndar víðast hvar í heiminum. En er raunhæft að láta sig dreyma um ástina með Bieber, eða er það vita vonlaust að vera aðdáandi, sem á endanum krækir í átrúnaðargoðið?

Tja.... kannski að það sé ekkert svo vonlaust! Zetan rakst á skemmtilega ástarsögu, sem ætti að hvetja aðdáendur til dáða. Það geta nefnilega allir draumar ræst....

Átrúnaðargoðið.

Jake T. Austin er ungur bandarískur leikari, þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttaröð sem heitir Wizards of Waverly Place. Þótt Austin sé ekki þekktur hér á landi, hefur hann verið þekktur í Bandaríkjunum frá barnsaldri því hann hefur leikið í fjöldanum öllum af sjónvarpsþáttum og eins talað fyrir mörgum teiknimyndafígórum hjá stórum framleiðendum eins og Disney og Nickleodeon.

Austin er 21 árs.

\"\"

 

Aðdáandinn.

Danielle Ceasar hefur örugglega kallað sig aðdánda nr.1. Hún hefur dýrkað og dáð Austin síðustu 5-6 árin, en ekki komist nærri honum en í gegnum aðdáendasíður hans á samfélagsmiðlunum. Þar hefur hún fylgt honum eftir og sent ótal ástarkveðjur. Þetta eru þá stöðufærslur eins og: 

,,Ég er að verða geðveik á því að reyna að hitta á þig einhvern veginn í sumar”

eða

,,Ég&@jaketaustin munum giftast. Ssss= hann bara veit það ekki enn þá :-) Já ég veit að ég er geðveik :D”

\"\"

 

Austin tekur eftir Danielle.

Loks náði hún að hitta á Austin árið 2012, smellti af sér aðdáendamynd með honum og birti á Instagram. Þar taggaði hún Austin og má sjá að Austin fór eitthvað að taka við sér í kjölfarið, því stundum mátti sjá að hann fylgdi henni eftir á Instagram.

Og nú eru þau par.

Hvernig fór hún samt að þessu?

Það veit enginn hvernig Danielle og Austin kynntust á endanum, en til að gera langa sögu stutta, gerðist það fyrir nokkru að þau opinberuðu sambandið sitt á samfélagsmiðlunum. Nýjasta dæmið er mynd á Instagram sem Austin birti og þar segir hann: ,,Ég er hreinlega vitlaus í hana.” Danielle birti sömu mynd, með stöðufærslunni ,,Allar ástarsögur eru fallegar, en okkar ástarsaga er uppáhaldssagan mín.”

\"\"

Þannig að fyrir aðdáendur Justin Bieber eða annarra stórstirna:

Það geta greinilega allir draumar ræst!

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!