Vá! sjáið hvað bran stark hefur breyst í game of thrones

Jæja, nú fer að styttast í seríu 6 af Game of Thrones, sem áætluð er að hefji sýningar ytra í apríl og vonandi um sama leyti hér. Einn af öðrum hafa Stark bræðurnir týnt lífi, þótt enn haldi margir í vonina um að Jon Snow sé í raun ekki dáinn enn. En nú er það Bran Stark sem er að vekja athygli því á Twitter birtist mynd af honum úr næstu seríu og já sæll: Sá hefur breyst!

Þegar við skildum við Bran Stark í síðustu þáttaseríu, hafði hann komist að trénu sem hann hafði svo lengi séð í sýnum sínum og þríeygða hrafninn, sem reyndist maður eftir allt saman. Zetan veit auðvitað jafn lítið og aðrir hvað gerist næst hjá Bran, en leikarinn Isaac Hempstead-Wright hefur alla vega stækkað töluvert síðan síðast. Er nema von. Isaac var aðeins 12 ára þegar þáttaserían byrjaði en er nú orðinn 16 ára.

Og sagður mjög hávaxinn!

Nú er ekkert nema að bíða og telja vikurnar fram að næstu seríu. ,,Stay tuned....”

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!

\"\"Ekki missa af matarkeppninni miklu: Besti maturinn er á dagskrá kl.20 og kl.22 á miðvikudagskvöldum og endursýndur á fimmtudögum, á laugardagskvöldum kl.20 og á sunnudögum. Frábærir þættir þar sem þáttakendur keppast við að útbúa bestu máltíðina fyrir aðeins 3.000 krónur. Fylgstu með á Hringbraut!