Um erfðaskrá og óskir david bowie

Erfðaskrá David Bowie var opinberuð síðastliðinn föstudag. Það var á Manhattan í New York, en þangað flutti Bowie árið 1992. Erfðaskráin var samtals 20 blaðsíður og vel útlistuð. Hana gerði Bowie árið 2004.

Í erfðaskránni kom meðal annars fram, að Bowie kysi helst jarðaför að hætti Búddisma á Bali. Hins vegar kom fram að ef þetta væri ekki raunhæfur kostur, þá kysi hann bálför og að ösku hans yrði síðan dreift á Bali. Í frétt Fox kemur fram að líkami Bowie var brenndur þann 12.janúar síðastliðinn í New Jersey. Því má gera ráð fyrir að ösku hans verði síðar dreift á Bali.

Eignir Bowie, sem hét réttu nafni David Robert Jones, eru metnar á um 100 milljónir dollara. Bowie átti tvö börn. Soninn Duncan Jones frá fyrra hjónabandi. Hann er í dag 45 ára. Bowie og Iman áttu síðan saman dótturina Alexandriu. Hún er 15 ára.

Iman fékk tæplega helming auðæva Bowie, þar á meðal heimilið þeirra í SoHo. Sonurinn fær 25% og dóttirin 25%, auk sveitaseturs sem Bowie átti í Ulster County.

En Bowie gekk einnig frá rausnarlegum tilmælum um úthlutun fjárs og eigna til starfsmanna sem höfðu reynst honum og fjölskyldunni vel. Þannig fékk aðstoðarkonan hans til margra ára, Corrinne Schwab, 2 milljónir dollara. Því til viðbótar fær hún hlutabréf í félagi Bowie, Oppossum Inc.

Þá fékk barnfóstra Alexandriu, Marion Skene, 1 milljón dollara.

Á mynd má sjá Bowie, Alexandriu og Iman. Á neðri mynd má sjá Bowie, með syni sínum Duncan Jones. Sú mynd var tekin árið 2009.

\"\"

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!