Tímamót: fyrirsæta í yfirstærð á forsíðu sports illustrated

Jæja, smátt og smátt er það nú kannski að gerast að myndir af konum í tímaritum eða auglýsingum, eru ekki eingöngu myndir af konum samkvæmt einhverjum staðalímyndum sem flestar konur geta ekki samsvarað sig við. Nú hefur það nefnilega gerst að sérstök sundfataútgáfa tímaritsins Sports Illustrated, prýðir fyrirsætu á forsíðu, sem flokkast undir fyrirsætu í yfirstærð.

Reyndar myndi Zetan lýsa konunni eingöngu sem glæsilegri konu og alls ekkert sérstaklega í yfirstærð, en svona er nú tískubransinn og fyrirsætan Ashley Graham, er skilgreind sem fyrirsæta fyrir ,,plus size.”

Að vissu leyti ber þó að fagna þessum tímamótum. Tímarit og auglýsendur hafa lengi verið gagnrýndir fyrir þær myndbirtingar sem þeir hafa lengi kosið að sýna af kvenþjóðinni, sem fáar konur hafa jafnvel geta samsvarað sér við. Það má því segja að þetta sé skref í rétta átt (eða er það ekki?), enda skrifaði Grahm sjálf um forsíðuna á Instagram og sagði:

,,Ég er algjörlega orðlaus!!! Þessi forsíða er fyrir allar konur sem hafa hingað til upplifað sig sem ekki nógu fallegar vegna líkamsvaxtar síns. En það er hægt að ná öllum þeim markmiðum sem maður leggur sig fram við.”

Forsíða sundfataútgáfunnar er mjög eftirsótt, enda hefur þessi útgáfa tímaritsins verið sérstaklega vinsælt blað í mörg ár. Til samanburðar, látum við nokkrar forsíður af sundfataútgáfu Sports Illustrated fylgja með. Þær forsíður endurspegla vel hvaða skref tímaritið er að taka.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Og hér er síðan Ashley Graham!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!