Tíkin stóð á sama staðnum í mánuð og beið og beið og beið....

Það er ekki oft sem Zetan rekst á sögu frá Thailandi, sem flýgur um veraldarvefinn á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum. En það á við um þessa sögu hér. Hún er um tík, sem varð viðskila fjölskyldu sinni rétt fyrir utan Bankok. Talið er að hún hafi fallið frá borði á bát, sem siglt var um ánna Chao Phraya og er vinsæll siglingastaður.

Tíkin náði að synda í land.

Þar sat hún og beið á bryggju dag eftir dag eftir dag. Augljóst var að hún beið eftir því að fjölskyldan kæmi til baka.

En enginn kom.

\"\"

Ekki er vitað hvers vegna, fjölskyldan kom ekki aftur á bryggjuna eða leitaði hundsins. Hins vegar var birt mynd á Facebook af tíkinni, þar sem hún stóð á bryggjunni og beið. Á aðeins tveimur sólahringum, var myndinni deilt ríflega 11 þúsund sinnum meðal notenda á Facebook í Thailandi.

Með myndinni, sagði sá sem birti frásögnina af tíkinni, að hann hefði fylgst með henni í heilan mánuð. Hann sagði tíkina standa við bryggjuna alla daga og bíða. Sér til matar, fann hún sér eitthvað í grenndinni, eða reiddi sig á ókunnuga sem áttu leið hjá.

\"\"\"\"

Sem betur fer, hafði ókunnug fjölskylda síðan samband við þann sem birti stöðufærsluna á Facebook. Fjölskyldan vildi taka tíkina að sér og gefa henni nýtt heimili. Tíkin var ómerkt og því vissi enginn hvað hún hét. Nýja fjölskyldan ákvað hins vegar að gefa henni nafnið Tha Ruea, sem þýða má sem ,,Bryggjuna.”

Hér má sjá mynd af Tha Ruea á nýja heimilinu sínu.

Hd.TheDodo

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!